Eg er sannfærð um, að engin sú kona ertil og hefir aldrei verið til, sem eigi hefir lagtfyrir sjálfa sig þessu líka spurningu einhverntíma á æfinni, og þá helst meðan æskan ogfegurðin voru í blóma sínum; þegar lífiðbrosti við og vonirnar voru sem bjartastar oghiminháu skýjaborgirnar enn ófallnar, þáhefir þessi spurning komið fram í hugumallra kvenna og hver hefir reynt að svarahenni eftir bestu vitund--með framkomusinni.
Það er tilgangur minn með þessum bæklingi,að reyna að benda ungum og gömlumkynsystrum mínum á ýmislegt það, er verðamætti þeim til leiðbeiningar í umgengni ogsamlífi við karlmenn, og einkum hvernig þæreiga að hegða sér og haga til þess að verðayndislegar í þeirra augum.
Vitanlega verður þessi tilraun mín afarófullkomin, enda eigi á hvers manns valdiað rita stóra bók um þessi efni, en á það ereinnig að líta, að verðmæti bóka fer eigi eftirblaðsíðufjölda og orðamergð þeirra, heldureftir hinu, hvort bókin ber á borð fyrir þjóðinaheilnæmar og siðbætandi kenningar, hvortheldur eru um landbúnað eða ástamál.
Að svo mæltu sný eg mér að efninu og biðþig að fylgjast með mér og veita þeim bendingumathygli, sem eg vil gefa þér, til þessað þú getir orðið yndisleg í augum karlmanna,einkum þó unnusta þíns eða eiginmanns.
Já, hvað er það, sem gerir konur yndislegarí augum karlmanna?
Það eru eigi fötin, hatturinn, skórnir eðafingurgullin. Og það er heldur eigi fegurðinein. Gyðju-fríð kona getur verið svo köld ásvipinn--svo albrynjuð stærilæti og stolti--að fegurð hennar hrífur engan karlmann.
Það sem gerir konuna yndislegasta í augumkarlmanna er blíða hennar og yndisþokki,háttprýði hennar í allri framkomu, bros hennar,augnatillit og málrómur, fótatak og allarhreyfingar, ást hennar og næmur skilningurá öllu því göfgasta í tilverunni, fórnfýsi hennarog sjálfsafneitun, sem glöggast kemurfram hjá mæðrum við börn þeirra. Alt þettamyndar einskonar geislabaug, er sumar konurbera svo sýnilega með sér og hefir göfgandien um leið töfra-mikil áhrif á karlmennina,vermir hjörtu þeirra og opnar þeim nýjaheima og nýtt útsýni yfir lönd ástarinnar.
Sumar konur virðast fæddar með þeirrihamingju að vera pilta-gull, en eigi eru þærað fremur meiri mannkostum búnar en hinar,enda eru þess mörg dæmi, að bestu kvenkostirnirsitja auðum höndum á akri ástarinnarog fá eigi að hafst--af ýmsumástæðum.
Rödd þín og orðaval á mikinn þátt í því,hvort þú ert yndisleg í augum karlmanna eðaekki. Þess vegna er þér áríðandi að temja velrödd þína og vanda vel orðbragð þitt. Mild oghljómfögur rödd, samfara ástríkum og fallegumorðum, bræðir klaka hinnar köldustu sálar.Temdu þér mildan og blíðan málróm,en því fegurri sem málrómurinn er, því vandaðraverður orðbragð þitt að vera. Fallegrödd og ljót orð eiga ekki saman.
Mér finst ástæða til að vara þig sérstaklegavið orðskrípum eins og þessum: hvað hannsé „sætur“, „pen“, „lekker“; þetta eða hitt sé„vemmilegt“, „kedelegt“, „svart“, „brogað“;hvað „fríseringin sé óklæðileg“; hvað þessikjóll sé „himneskur“ og að hrópa „almáttugur“í annari hverri setningu.
...